FeykirTV kíkti á æfingu hjá Karlakórnum Heimi
Að venju mun Karlakórinn Heimir halda þrettándahátíð í Miðgarði og sem fyrr verður gert eitthvað nýtt og spennandi. Að þessu sinni verður skemmtunin tvískipt þ.e. fyrir hlé verða hefðbundin karlakóralög en eftir hlé fá þeir til liðs við sig Himma Sverris sem er Skagfirðingum að góðu kunnur og svo Guðrúnu Gunnarsdóttir sem hefur verið að gera garðinn frægan á síðustu misserum með lögum sem Ellý Vilhjálmsdóttir gerði ódauðleg á sínum tíma þá verður bætt enn meira í með hljóðfæraleik bæði rafmögnuðum og blæstri.
FeykirTV kíkti á æfingu fyrir tónleikanna og tók þá Stefán söngstjóra og Jón Hall hristara tali.
http://www.youtube.com/watch?v=Ol7C0UVoNEM