FeykirTV tekur hús á Funk That Shit!
Funk That Shit! er nýleg hljómsveit sem er með höfuðstöðvar sínar á Sauðárkróki. Hljómsveitin hefur vakið þónokkra athygli síðustu misseri og lentu til að mynda í þriðja sæti á síðustu músíktilraunum. FeykirTV fór á æfingu hjá þeim félögum í tónlistarskólanum og tók stutt spjall um hvað er á döfinni hjá þessari mögnuðu Fönk hljómsveit.
Sveitina skipa Reynir Snær Magnússon gítarleikari, Guðmundur Ingi Halldórsson bassaleikari og Kristján Reynir Kristjánsson trommuleikari.
http://www.youtube.com/watch?v=L9Ql_PFusu8