Fimm hljóta styrk úr Húnasjóði
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
26.07.2019
kl. 13.58
Á fundi í byggðarráði Húnaþings vestra sl. miðvikudag var farið yfir umsóknir í Húnasjóð. Sex umsóknir bárust um styrk úr sjóðnum, þar af fimm sem uppfylltu skilyrði til úthlutunar. Byggðarráð samþykkti að veita eftirtöldum umsækjendum styrk úr Húnasjóði árið 2019:
Helga Rún Jóhannsdóttir, nám til sveinsprófs í bakaraiðn.
Freydís Jóna Guðjónsdóttir, nám til Bs. prófs í sálfræði.
Anna Dröfn Daníelsdóttir, nám til Ma. prófs í læknisfræði.
Jóhanna Herdís Sævarsdóttir, nám til Bs. prófs í sjúkraþjálfun.
Anton Birgisson, diplómanám í íþróttasálfræði.
Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 100.000.
Samkvæmt úthlutunarreglum Húnasjóðs geta eftirtaldir fengið fullan styrk úr sjóðnum:
- Þeir sem stunda nám á háskólastigi þó ekki v/masters eða doktorsnáms.
- Þeir sem stunda fagnám til starfsréttinda sem ekki eru á samningi við vinnuveitanda í starfsgrein sinni.
- Háskólanemar- og nemar í fagnámi þurfa að vera á síðasta námsári eða að hafa lokið námi sínu til að geta fengið styrk.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.