Fjaran uppspretta ævintýra
Fjaran neðan Sauðárkróks er mikið gengin af bæjarbúum enda greiðfær og falleg. Í góðu veðri er útsýnið „gargandi snilld“ eins og einhver orðaði það og ýmislegt sem rekur upp á fjörusandinn. Síðasta sunnudag gekk fólk fram á furðufisk sem lá í fjöruborðinu, langur og flatur og þriggja kílómetra lína af krabbadýrum vakti athygli fjörulalla.
Ljós lína náði fjöruna endanna á milli, frá Króknum og niður að Vesturós.
Fiskurinn sem um er talað mun vera vogmær. Samkvæmt Vísindavefnum getur hún orðið nokkuð stór eða um 3 metrar á lengd. Heimkynni hennar eru í Norðaustur-Atlantshafi og virðist vera algeng allt í kringum Ísland, nema undan ströndum Norðausturland og Austurlands. Vogmær finnst undan ströndum Noregs, í Norðursjó og umhverfis Bretlandseyjar og allt suður til Madeira.
Ljósátan er smávaxið krabbadýr sem heldur sig í efstu lögum sjávar.
Ljós lína í fjörunni sem teygði úr sér allt frá upphafi sandfjörunnar við Krókinn og niður að Ósbrú reyndist vera þegar að var gáð lítil krabbadýr sem blaðamanni þykir líklegt að sé ljósáta.
Ljósáta er smávaxið krabbadýr sem heldur sig í efstu lögum sjávar. Helsta fæða hennar eru sviflægir þörungar en sjálf er ljósátan mikilvægasta fæða margra tegunda ofar í fæðukeðjunni svo sem fiska og ekki síst hvala en hinar ýmsu tegundir ljósátu eru meðal lykilfæðutegunda flestra reyðarhvala (Balaenopteridae).
Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi var nokkuð líf í ljósátunni sem beið eftir því að yfirborð sjávar hækkaði á ný.
Tengdar fréttir:
Rekinn í fjörunni
https://www.youtube.com/watch?v=zV2bhZLQd58