Fjársjóðsleit og sandkastalakeppni

Haldinn verður fjölskyldudagur á Reykjum á Reykjaströnd nk. laugardag, 14. júlí, en þá er hugmyndin sú að fólk komi og njóti þeirra einstöku náttúru sem Reykir hafa upp á að bjóða. „Það er meira hægt að gera þar en að fara í Grettislaug eða Drangey þó svo að það sé náttúrlega alveg einstakt,“ segir Sigríður Inga Viggósdóttir.

Mæting verður kl. 12 við nýja kaffihúsið á Reykjum og þjónustumiðstöðina. „Við ætlum að byrja á því að ganga út í Glerhallarvík, síðan tekur við útieldun og þá á fólk að koma með sinn eigin mat til þess að elda. Svo sem brauðdeig, epli, appelsínur, sykurpúða. Það er hægt að sjá nokkrar uppskriftir inn á facebook.com/drangey undir glósur. Síðan ætlum við að leika okkur í fjörunni í fjársjóðsleit, sandkastalakeppni, skordýraleit, veiði og margt fleira,“ segir Sigríður Inga um dagskrá dagsins.

Sigríður Inga bendir fólk á að hafa með sér nesti, dót fyrir sandkastalakeppnina, plastbox undir skordýraleit og veiðistöng ef það vill veiða. „Á Reykjum er gott tjaldsvæði þannig að það er upplagt að koma með tjaldið með sér og tjalda að dagskrá lokinni um kl. 18, grilla og fara í Grettislaug,“ bætir hún við.

 „Þetta er upplagt tækifæri fyrir alla fjölskylduna að vera úti í náttúrunni og leika saman. Við þurfum ekki að fara í langferð til þess að njóta þess að vera saman,“ segir Sigríður Inga að endingu.

Fleiri fréttir