Fjör í fjöruferð
Krakkarnir í 4. bekk Árskóla á Sauðárkróki brugðu undir sig betrifætinum sl. þriðjudag og fóru í fjöruferð á Borgarsandinn. Þar er meira en nóg af byggingarefni í sandkastala og var það notað óspart.
-Þetta var rosalega skemmtilegur dagur, börnin skemmtu sér vel, sólin skein og kastalarnir voru glæsilegir, segir Gestur Sigurjónsson kennari. Myndir úr ferðinni má sjá á Árskólasíðunni HÉR.