Fjör við frumsýningu Fíusólar
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi barnaleikritið Fíusól um sl. helgi en þá bauð Fíasól fólki í sitt hosiló þar sem hún brallaði ýmislegt með Ingólfi Gauki vini sínum og pöntuðu þau m.a. heilan netþjón. Enn gefst tækifæri til að fara á þetta stórskemmtilega leikrit, sem er góð skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna, því eftir eru fjórar sýningar.
Næstu sýningar verða á eftirfarandi dögum:
5. sýning í dag, laugardag 10. nóv. kl. 18
6. sýning sunnudag 11. nóv. kl. 14
7. sýning miðvikudag 14. nóv. kl 18
Loka sýning föstudag 16. nóv. kl. 18
Miðasalan fer fram í Bifröst alla virka daga milli 16-18 og svo 30 mínútum fyrir sýningar um helgar.
Miðasölusími er 849 9434 á opnunartíma miðasölu.
Hér eru nokkrar myndir sem blaðamaður Feykis smellti af við frumsýningu Fíusólar.