FNV komst ekki áfram

Fyrsta umferð Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna á Rúv, fór fram á Rás 2 í gærkvöldi en þar mætti m.a. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra til keppni.

Samkvæmt samskiptasíðu Gettu betur á Facebook voru andstæðingar FNV nemendur Flensborgarskólans í Hafnarfirði og sigraði Flensborg 9-7. Fyrsta umferð Gettu heldur síðan áfram í kvöld á Rás 2.

 

 

Fleiri fréttir