Fögnum páskum í kirkjunni
Helgihald í dymbilviku í Sauðárkrókskirkju hófst með því að Matti í Pöpum hélt tónleika á skírdagskvöldi í boði kirkjunnar. Fjölmenni sótti kirkjuna heim og hlýddi á Matta sem flutti blandaða músík við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar kirkjuorganista við fínar undirtektir kirkjugesta.
Í hléi var gengið til altaris og síðustu kvöldmáltíðarinnar minnst með brotningu brauðs og bergt á safaríkum vínberjum. Að sögn formanns sóknarnefndar Sauðárkrókskirkju, Brynjars Pálssonar, var þetta falleg kvöldstund.
Á morgun, páskadag, verður hátíðarmessa í Sauðárkrókskirkju kl. 8:00 og eftir messu býður sóknarnefnd til morgunverðar í safnaðarheimilinu. Það verður mikið að gera hjá séra Sigríði Gunnarsdóttur sóknarpresti á morgun því einnig verður hátíðarmessa á Dvalarheimilinu á Sauðárkróki kl. 11 og hátíðarmessa í Hvammskirkju á Laxárdal kl. 14. Þá má geta þess að messa var í Sauðárkrókskirkju í gær, Föstudaginn langa.