Foreldrafundir hjá yngri flokkum Tindastóls í dag

Knattspyrnudeild Tindastóls boðar foreldra barna í yngri flokkum félagsins á fundi í dag. Á dagskrá verða ýmis mál er varða hagsmuni iðkendanna s.s. hlutverk knattspyrnudeildarinnar, keppnisferðir á næsta ári ásamt því að ræða um barna-, unglinga- og foreldraráð. Þá verður kynning á nýjum knattspyrnustjóra yngri flokka en nýverið tók Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir við því starfi.

Klukkan 19:30 – 20:15 verður fundur fyrir 8., 7. og 6. flokk en klukkan 20:30 – 21:15 fyrir 5., 4. og 3. flokk.

Fundirnir verða haldnir í Húsi frítímans og vonast knattspyrnudeild Tindastóls eftir því að sjá sem flesta foreldra enda um sameiginleg hagsmunamál að ræða.

Fleiri fréttir