Foreldrafundir Maríta fræðslunnar
Maríta fræðslan er nú hafin í Skagafirði og er minnt á foreldrafundina sem verða haldnir í hverjum skóla fyrir sig.
Samkvæmt fréttatilkynningu verður foreldrafundur fyrir nemendur 8.-10 bekkjar Grunnskólans austan Vatna í dag, þriðjudaginn 6. nóvember klukkan 16:00 í Grunnskólanum á Hofsósi.
Sama dag klukkan 20:00 er foreldrafundur fyrir foreldra 8.-10 bekkjar í Varmahlíðarskóla.
Miðvikudaginn 7. nóvember eru foreldrafundir Árskóla. Foreldrar nemenda 10. bekkjar er klukkan 18:00 í Húsi frítímans. Og foreldrar nemenda í 8. og 9. bekk klukkan 20:00 í Húsi frítímans.
Fimmtudaginn 8. nóvember er fundur fyrir foreldra, starfsfólk og kennara FNV klukkan 20:00.