Forsetahjónin í Fljótunum á N4

Sjónvarpsstöðin N4 fylgdi forsetahjónunum eftir í Fljótin í gær er þau heimsóttu bændur á Brúnastöðum og nemendur Sólgarðaskóla. Þar áttu þau góða stund eins og vænta mátti en hægt er að sjá það sem fest var á filmu á N4.

Sólgarðaskóli er einn af fámennustu skólum landsins og kemur það fram í viðtali við Guðrúnu Hönnu Halldórsdóttur deildarstjóra að hann sé nauðsynlegur samfélaginu og reyndar standi og falli búseta með því að hann fái að starfa áfram í framtíðinni.

Sjá umfjöllun um heimsókn forsetahjónanna HÉR

Fleiri fréttir