Frábær árangur hjá Sævari í Idre

A-landsliðsmenn Íslands í skíðagöngu kepptu um helgina á FIS móti í Idre í Svíþjóð og náði Skagfirðingurinn Sævar Birgisson frábærum árangri þegar hann lækkaði sig niður í 86 FIS punkta í sprettgöngu með frjálsri aðferð á laugardag. Þar með náði Sævar Ólympíulágmarki í þeirri grein.

Samkvæmt heimasíðu Skíðasambands Íslands átti Sævar best 145 punkta sem hann náði í Bruksvallarna fyrir hálfum mánuði en með þessum árangri, sem skilaði honum í 13. sæti í keppninni, er hann langt undir Ólympíulágmarki sem er 120 punktar í sprettgöngu.

Á sunnudag var svo keppt í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð og þar náði Sævar einnig sínum besta árangri til þessa þegar hann hafnaði í 40. sæti sem gaf honum 123 punkta. Brynjar Leó Kristinsson SKA keppti einnig um helgina en náði ekki að toppa sinn besta árangur en þeir félagar munu keppa næst í Noregi helgina 15-16.desember.

Fleiri fréttir