Frábær frumsýning LS í gærkvöldi

Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi í gærkvöldi gamanleikinn Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney fyrir fullu húsi og rífandi stemningu. Leikurinn er dæmigerður farsi þar sem misskilningurinn hefst strax í upphafi verks og endist allt til loka með tilheyrandi hurðaskellum og orðaleikjum.

Gestir sýningarinnar voru vel með á nótunum  í gær og skemmtu sér vel enda glumdu hlátrasköllin alla sýninguna út. Leikararnir voru hver öðrum betri og allir með sín hlutverk á hreinu og textameðferðin góð þrátt fyrir öll lætin. Það hefur oft verið talað um það hve vel mannað Leikfélagið er og sannast það á þessari sýningu.

Guðbrandur J. Guðbrandsson, Sonja Hafsteinsdóttir og Árni Jónsson fara með stærstu hlutverkin og bera sýninguna uppi og tekst þeim það fullkomlega. Aðrir sem fara með minni hlutverk gera það einnig mjög vel enda valinn maður í hverju rúmi ef svo mætti segja.

Þegar allt þetta kemur saman ásamt góðri leikstjórn Ingrid Jónsdóttur verður til frábær skemmtun sem enginn verður svikinn af. Af öllum leikurunum ólöstuðum má segja að Árni Jónsson fari algerlega á kostum í sýningunni og undirstrikar þar að hann er einn af bestu gamanleikurum LS í dag.

Fleiri fréttir