Frábær sigur Stólanna fyrir vestan

Tindastóls-strákarnir hrukku heldur betur í gírinn í dag þegar þeir léku við BÍ/Bolungarvík á Torfnesvelli á Ísafirði. Eftir tvo leiki sem töpuðust naumlega var nauðsynlegt fyrir Stólana að fara að krækja í stig eða í það minnsta að fara að koma boltanum í mark andstæðinganna. Það tókst og rúmlega það með 2-5 sigri á erfiðum útivelli.

Eitthvað voru nú upplýsingarnar um leikinn sem Feykir hafði upp eftir umfjöllun á Fótbolti.net frjálslegar og fréttin hér lagfærð eftir áreiðanlegum heimildum á Tindastóll.is. en við það fækkar mörkunum sem Atli gerði um eitt og tvö bætast við hjá Theo. Beðist er velvirðingar á þessu.

Aðstæður á Ísafirði til knattspyrnuiðkunar voru með því verra sem gerist, hvasst og völlurinn líkari sundlaug en knattspyrnuvelli. Tindastólsmenn komu hinsvegar baráttuglaðir og ákveðnir til leiks og voru miklu betri í leiknum. Strákarnir léku á móti vindi í fyrri hálfleik og það var Max Touloute sem kom strákunum yfir eftir 27 mínútur eftir laglega skyndisókn og Theo Furness bætti öðru marki við stuttu síðar og staðan 0-2 í hálfleik.

Theo var síðan aftur á ferðinni þegar 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og staðan orðin 0-3. Pétur Georg Markan kom heimamönnum inn í leikinn með marki þegar um hálftími var eftir en Theo skoraði með hörkuskoti fimm mínútum síðar eftir mikla sókn Stólanna þar sem hvert skotið af öðru skall að marki Vestfirðinga. Theo innsiglaði þar með þrennuna og breytti stöðunni í 1-4. Guðmundur Atli Steinþórsson lagaði stöðuna með marki á 73. mínútu en það var síðan Atli sem innsiglaði frábæran stórsigur Tindastóls með öðru marki sínu í leiknum á 88. mínútu.

Tveir leikmenn fuku í sturtu á lokakaflanum, einn úr hvoru liði en það var markaskorarinn Theo Furness sem leit rautt á blálokin.

Nú er bara að halda áfram og hafa gaman af því að spila knattspyrnu í 1. deild. Áfram Tindastóll.

Fleiri fréttir