Frábær sigur Tindastóls á Hetti Egilsstöðum
Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir nú undir kvöldið og gulltryggðu sæti sitt í 1. deild með mögnuðum útisigri á Hetti en leikið var á Egilsstöðum. Markalaust var í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik hrukku leikmenn beggja liða í gang en það voru Stólarnir sem höfðu betur og sigruðu 3-2.
Höttur lék undan nokkrum vindi í fyrri hálfleik en vörn Tindastóls var vel á verði. Fátt var um færi en heimamenn vildu þó fá víti eftir stundarfjórðungsleik en varð ekki að ósk sinni. Eftir um hálftíma fór boltinn í mark Stólanna eftir að leikmaður Hattar kom sér fyrir útspark frá Seb Furness en kappinn var talinn brotlegur og fékk að líta gula spjaldið. Á markamínútunni fékk Elvar Þór Ægisson dauðafæri við mark Tindastóls en negldi yfir. Það var helst að Max Touloute ógnaði marki Hattar í fyrri hálfleik en allt kom fyrir ekki. Staðan 0-0 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var rétt hafinn þegar heimamenn komust yfir með marki frá Davíð Einarssyni. Þeir voru ekki lengi í paradís því Colin Helmrich jafnaði á 52. mínútu eftir að aukaspyrna Stólanna féll fyrir fætur hans í teignum. Skömmu síðar munaði minnstu að Max kæmi Tindastólsmönnum yfir en markvörður heimamanna varði vel. Á 72. mínútu kom Atli Arnarson Stólunum yfir með þrumuskoti af 25m færi í vinkilinn og aðeins fjórum mínútum síðar bætti Benjamín Gunnlaugsson þriðja markinu við með langskoti. Það var því á brattann að sækja hjá heimamönnum gegn vel skipulögðum Tindastólsmönnum en þeir náðu að klóra í bakkann í blálokin þegar Friðrik Ingi Þráinsson lagaði stöðuna en lokatölur 3-2 fyrir Tindastól.
Nú eiga Tindastólsmenn aðeins tvo leiki eftir í deildinni og hafa þegar tryggt sætið í deildinni. Stólarnir eru um miðja deild, eru í sjöunda sæti með 27 stig. Algjörlega frábær árangur hjá liðinu í sumar en leikir liðsins hafa flestir verið skemmtilegir og liðið spilað flottan fótbolta.
Heimild: Fótbolti.net