Fræðslu og kynningarfundur um jarðskjálfta í dag

Fræðslu og kynningarfundur verður haldin á Sauðárkróki í dag, þriðjudaginn 13. nóvember, á vegum Almannavarnanefndar klukkan 17:30 í Bóknámshúsi Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Fjallað verður um jarðskjálfta og viðbrögð við þeirri vá sem þeim getur fylgt.

Dagskrá fundarins:

  • Kynning á fundarefni og fyrirkomulagi
  • Jarðskjálftar á Norðurlandi, hvað veldur?
  • Áætlanir, viðbragð, kynningarefni
  • Hvað getur fólk gert?
  • Hvernig bregstu við tjóni
  • Næstu skref

Sérfræðingar frá Veðurstofu, Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og fleirum flytja erindi og svara spurningum úr sal.

Íbúar Skagafjarðar eru hvattir til að mæta og fræðast um jarðskjálfta og viðbrögð við þeim.

Fleiri fréttir