Frísklegt sjóbað á þrettándanum

Sjósundkappar í Skagafirði efna til sjóbaðs eða sjósunds í dag á þrettánda og síðasta degi  jóla við nýja hafnargarðinn á Sauðárkróki kl. 14.00. Benedikt S. Lafleur sjósundkappi og félagar munu taka vel á móti sjóbaðsgestum en alir eru velkomnir að vera með.

-Að loknu sjóbaði er tilvalið að ylja sér í heitu pottunum í sundlaug Sauðárkróks, segir Benedikt en hann veitir allar upplýsingar, ef spurningar kunna að vakna, í síma  659 3313.

Fleiri fréttir