Frjálsíþróttaskóli UMFÍ á Sauðárkróki 11 – 15 júní
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
04.06.2012
kl. 10.47
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ verður haldinn á Sauðárkróki í fimmta sinn í sumar frá mánudeginum 11. júní til föstudagsins 15. júní. Skólinn er fyrir ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára og segir á heimasíðu UMSS að þarna komist krakkar í frábæran félagsskap, holla hreyfingu, skemmtun og útiveru.
Aðalþjálfarar skólans verða þeir Árni Geir Sigurbjörnsson og Gunnar Sigurðsson frjálsíþróttaþjálfari en hér er gott tækifæri að bæta sig í frjálsum íþróttum.
Enn er hægt að skrá sig í skólann og er þátttökugjald er 17.000 en innifalið er kennsla, fæði og húsnæði. Skráning á http://www.umfi.is/