Fyrsta önn hársnyrtibrautar

Þrettán áhugasamar stelpur eru í þann mund að ljúka fyrstu önn á nýrri hársnyrtibraut við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sem hófst í haust. „Það er margt að læra á nýrri braut og kom það þeim skemmtilega á óvart hvað þetta er lifandi og skemmtilegt nám og eru þær strax byrjaðar að æfa klippingar, upprúll og blástur í verklegu námi,“ segir á heimasíðu FNV.  

Hársnyrtinemarnir voru með sýningu á Menningarkvöldi NFNV en samkvæmt heimasíðunni tókst hún mjög vel.

Myndir af starfi annarinnar má sjá hér. Þá gerðu nemendur í kvikmyndagerð myndband um undirbúning sýningarinnar á menningarkvöldi og má sjá það hér.

 

Fleiri fréttir