Fyrsta skóflustungan að nýrri smábátahöfn tekin á Sauðárkróki

Hafist var handa við fyrsta áfanga að byggingu smábátabryggju á Sauðárkróki sl. laugardag er Gunnar Steingrímsson hafnarvörður tók fyrstu skóflustunguna með stærri skóflu en hann er vanur að nota. Það er verktakafyrirtækið Fjörður sem sér um jarðvinnuna.

Svona mun teikningin af hinni nýju smábátahöfn á Sauðárkróki líta út.

Að sögn Jóns Árnasonar verður grjótið sem myndar sjóvarnargarðinn tekið upp fyrir áramótin en um miðjan janúar verður farið í dýpkun hafnarinnar.

Núverandi aðstaða smábátasjómanna verður færð að þeirri nýju og mun hún gjörbreytast til batnaðar.

Fleiri fréttir