Fyrstu stig Tindastóls náðust í Ljónagryfjunni
Lið Tindastóls í Domino´s deildinni gerði góða ferð í Njarðvík í gærkvöldi er þeir mættu liði heimamanna í Domino´s deildinni. Stólarnir þurftu svo sannarlega á stigunum tveimur að halda enda þau fyrstu sem þeir landa í deildinni þessa leiktíðina.
Njarðvíkingar hafa þrjá unna leiki í tölfræðinni og sex töp og eru tveimur sætum ofar en Tindastóll sem situr á botninum í tólfta sæti. Leikurinn í gær var nokkuð kaflaskiptur og skiptust liðin á að leiða. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 22:28 fyrir Stólana en Njarðvíkingar leiddu í hálfleik 46:40. Eftir þriðja leikhluta var staðan 66:58 fyrir heimamenn en spennan náði hámarki í fjórða leikhluta þegar Stólarnir náðu að jafna þegar tæp ein og hálf mínúta var til leiksloka 78:78 og unnu svo langþráðan sigur með 86 stigum gegn 80.
George Valentine var stigahæstur Stólanna með 21 stig og tók 7 fráköst, Drew Gibson 18 stig og 6 fráköst auk 11 stoðsendinga, Þröstur Leó Jóhannsson 16 stig og 4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 14 stig og 10 fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson og Svavar Atli Birgisson 7 stig hvor og Ingvi Rafn Ingvarsson 3.
HÉR er hægt að sjá hvernig Adam Ásgeirsson lýsti rimmunni á Karfan.is