Gæðingur páskabjór fær góðar viðtökur
Gæðingur Öl kom með páskabjór á markað á dögunum og hefur hann fengið mjög góðar viðtökur. „Flottur páskabjór, ekki of krefjandi og ekki of mildur,“ segir um ágæti hans í Bjórbókinni. Bjórbókin er vefsíða þar sem finna má bjórrýni, fróðleik og fréttir um bjór en þar er eindregið mælt með Páskabjórnum frá Gæðing.
Þetta er í fyrsta sinn sem skagfirska ölgerðin hefur framleiðslu á páskabjór en fyrirtækið hóf ölgerð í fyrra og er með þrjár gerðir á markaðnum; Gæðing Stout, -Lager og - Pale Ale. Fyrirtækið kom einnig með sérstakan jólabjór og nú páskabjór.
„Fallegur í glasi, dálítill koparfílingur. Froða með ágætum. Í nefi eru léttir tónar, sæta og heytugga. Minnir á pale ale í nefi sem þó kemur ekki fram á tungu. Um er að ræða mjög léttan karl, mildur á tungu, meðalfylling og ljúft eftirbragð. Bjórinn er dálítið lifandi, spriklandi humlar, ögn beiskja en sætt maltið tónar þetta niður. Svo er einhver karamella þarna í bakgrunni,“ segir um páskabjórinn.
Á bjórbókinni er einnig fjallað um miðann á flöskunni og er hann sagður hafa vinninginn í ár, „virkilega fallegur miði,“ segir í bjórrýninni en Hugleikur Dagsson teiknar myndirnar sem prýða umbúðir þeirra bjóra sem eru í framleiðslu Gæðings.
Hér má sjá umfjöllun Bjórbókarinnar í heild sinni.