Gæsatalning í Skagafirði gekk vel

Skotfélagið Ósmann tók þátt í Gæsatalningu í Skagafirði þann 21. apríl sl. og var ekið fjörðinn þvert og endilangt til að telja gráæsir, heiðargæsir og helsingja. Samkvæmt Einari Stefánssyni var lagt áherslu á að leita af grágæsum þar sem heiðargæsin virðist smátt og smátt vera að flæma hana burt af svæðinu. „Heiðargæsunum hefur fjölgað svo mikið upp á heiðum að þær hafa verið að færa sig niður á láglendið í leit að æti og til að verpa,“ segir Einar.

Það var að beiðni Náttúrustofu Austurlands að félagar úr Skotfélaginu tóku þátt í talningunni en á sama tíma var verið að telja víða á Norðurlandi. Einar lagði af stað, ásamt Sigurfinni Jónssyni, kl. 7 um morguninn og voru þeir á ferðinni til kl. 20 um kvöldið. Eknir voru 350 km um fjörðinn í góðu veðri; hiti var 2°C, vindur um 2-3 m/s og sólskin. Samkvæmt Einar gekk talningin vel og töldu þeir 1046 grágæsir, 5920 heiðargæsir og 6200 helsingja.

Þetta var í fyrsta sinn sem félagar úr Ósmann taka þátt í slíkri talningu og að sögn Einars höfðu þeir mjög gaman af því að taka þátt í þessu stóra verkefni. „Það er líka gott að vita af því að nóg sé til af gæsum þegar við förum á veiðar í haust,“ segir hann og hlær.

Fleiri fréttir