Gamlárshlaup 2012

Hið árlega Gamlárshlaup verður þreytt samkvæmt venju frá Íþróttahúsinu á Sauðárkróki á morgun síðasta degi ársins en lagt verður af stað klukkan 13:00. Vegalengdir að eigin vali, þó að hámarki 10 km.

Allir eru hvattir til að taka þátt, engin tímataka en fólk getur gengið, skokkað eða hjólað allt eftir eigin höfði.

Skráning fer fram í Íþróttahúsinu frá klukkan 12:00, ekkert þátttökugjald en glæsileg útdráttarverðlaun að hlaupi loknu.

Fleiri fréttir