Ganga um bæinn og syngja jólalög - Myndband
Í tilefni af Þemadögum Árskóla sem hófust í gær hefur tónlistarhópur 1., 2. og 3. bekkjar gengið um Sauðárkrók og bankað upp á hjá fyrirtækjum og sungið af hjartans lyst. Þemadagarnir ná til allra árganga skólans þar sem nemendum verður skipt upp í aldursblandaða hópa í hvoru skólahúsi. Viðfangsefni þemadaga er að þessu sinni „Jólin" með ýmsum útúrdúrum að óskum nemenda.
Ekki verður um sýningu að ræða í lok þemans heldur eru foreldrar og aðrir bæjarbúar hvattir til að koma í skólann og fylgjast með nemendum í þemavinnunni.
Eftirfarandi vídeó var tekið upp í morgun í höfuðstöðvum Feykis og Nýprents.
http://www.youtube.com/watch?v=Xqu6t0Nm-Wk