Geirmundur í Árgarði um áramótin
Haldinn verður áramótadansleikur í félagsheimilinu Árgarði í Steinsstaðahverfinu í Lýdó í Skagafirði með Geirmundi Valtýssyni og félögum. Aldurtakmark er 16 ára á árinu 2013. Þeir sem eru áhugasamir fyrir sætaferðum frá Sauðárkróki geta haft samband við húsvörð, Ragnheiði Ósk í síma 843 8030.
Þar sem sagði í frétt á Feyki.is fyrir skömmu að útlit hefði verið fyrir því að ekkert yrði um skemmtun fyrir aldurshópinn 16 – 18 ára í Skagafirði vildi Ragnheiður koma eftirfarandi á framfæri:
Þar sem rangt var tekið fram í frétt á feykir.is í sambandi við áramótafagnað/nýársfagnað fyrir aldurstakmark 16 ára og eldri svohljóðandi:
"Útlit var fyrir að ekkert yrði um skemmtun fyrir þennan aldurshóp"
Ber að leiðrétta það hér með að það verður áramótadansleikur í félagsheimilinu Árgarði-Steinstaðarhverfi með hljómsveit Geirmundar og félögum, fyrir 16 ára og eldri og hvað er skemmtilegra en margar kynslóðir að fagna saman nýu ári undir fjölbreyttum og hressum tónum frá þessum félögum.
Sjá nánar auglýsingu í síðasta Sjónhorni sem kom út áður en áðurnefnd frétt kom fram, en allir lesa Sjónhornið.
Munum bara eftir áfengislögunum.