Gildran er óbeislað afl með eigin sál og hljóm
Hljómsveitin Gildran spilar á Tónlistarhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki sem fer fram um næstu helgi og lofar góðum tónleikum: „Þetta verður geggjað stuð!!!“ segir Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari hljómsveitarinnar. Feykir sendi Gildrunni nokkrar spurningar og tók púlsinn á rokkurunum.
Hvenær var hljómsveitin stofnuð og hvað heita hljómsveitarmeðlimir?
Hljómsveitin var upphaflega stofnuð 1979 en fyrsta platan kom út 1986. Hljómsveitin hefur haft svo til sömu liðskipan frá upphafi. Birgir Haraldsson söngvari, Karl Tómasson trommari og Þórhallur Árnason bassaleikari hafa verið með frá upphafi en ég bættist í hópinn 1989 (Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari). Okkur til aðstoðar er einnig hljómborðsleikarinn Ásgrímur Angantýsson.
Hvernig mynduð þið lýsa tónlist ykkar?
Sumir hafa líkt Gildrunni við U2 en aðrir Deep Purple. Við erum rokkarar en Gildran hefur eigin sál og hljóm. Það syngur til dæmis enginn eins og Biggi sem getur verið í senn angurvær eins og hlýr sunnanblær og breyst síðan í öskrandi eldfjall sem spúir eldi og eimyrju. Gildran er þannig óbeislað afl og við vitum aldrei hvernig við komum til með að spila hverju sinni.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?
Það gerist alltaf eitthvað skondið á öllum tónleikum. Það er það sem leikurinn gengur út á :)
Hvernig leggst í ykkur að spila á Gærunni 2012?
Þetta verður gaman og við lofum góðum tónleikum. Erum í toppformi og hlökkum til að spila.
Hvað er á döfinni?
Við erum í miðju plötuferli. Lög eru að detta inn og út af prógramminu hjá okkur. Búnir að taka upp 6 lög en ekki víst að öll lifi fæðinguna af. Fleiri að bætast í hópinn. Þetta eru harðar hríðir en vonandi kemur eitthvað út úr þessu sem við verðum ánægðir með. Ef aðdáendur okkar verða ánægðir líka er það bónus en fyrst og fremst verðum við að vera sáttir.
Eitthvað að lokum?
Það verður gaman að sjá ykkur og spila á Gærunni og svo á balli á Mælifelli á föstudagskvöldinu. Þetta verður geggjað stuð!!!!!!!
Gildran að spila live útgáfu af Huldumönnum sem er af fyrstu plötunni þeirra. Hljómleikarnir voru haldnir í Mosfellsbæ 1. maí 2010.
http://www.youtube.com/watch?v=JN9rC6GB204