Gissur frá Víðimýrarseli hlaut Byggðasöguna

Dregið var í spurningakeppni sem Byggðasaga Skagafjarðar og Skagfirðingabúð efndu til á aðventunni. Viðskiptavinir áttu að svara einni spurningu af léttara taginu til að sem flestir gætu tekið þátt:  Hver var síðasti kaþólski biskupinn á Hólum? Nokkur hundruð manns svöruðu og klukkan þrjú laugardaginn 22. desember 2012 var dregið úr kassanum eftir að hrært hafði verið í. Upp kom nafnið Gissur Már Jónsson.

Svo sérkennilega vildi til að hann var einmitt staddur í Skagfirðingabúð þegar útdráttur fór fram og gat því tekið á móti verðlaunum sínum sem voru eitt sett Byggðasaga Skagafjarðar 1.-6. bindi, að verðmæti 55.000 krónur.

Gissur er frá Víðimýrarseli, af Skagamanna og Valadalskyni en búsettur í Breiðholtinu í Reykjavík þessa stundina. Aðstandendur Byggðasögunnar og Skagfirðingabúðar óska Gissuri hjartanlega til hamingju. Hann hefur fengið rúmlega 2700 blaðsíður að lesa og 4000 myndir að skoða um hátíðarnar.

Fleiri fréttir