Glæsileg aðstaða hrossaræktarbúsins á Hofi

Í tengslum við bændahátíðina Sveitasælu í Skagafirði um sl. helgi opnuðu nokkur bú dyr sínar fyrir gestum og gafst þá tækifæri til þess að skoða mismunandi gerðir af búrekstri. Á Hofi á Höfðaströnd er rekið hrossaræktarbú en aðstaðan þar er öll hin glæsilegasta, eins og meðfylgjandi myndir bera vitni um.

Það var Barbara Wenzl, knapi og starfsmaður á Hofi, sem tók það á sínar hendur að sýna gestum búið í fjarveru eigenda þess, hjónanna Lilju Pálmadóttur og Baltasars Kormáks, en þau eru stödd erlendis um þessar mundir.

Sigrún Heiða Pétursdóttir Seastrand heimsótti Hof og smellti nokkrum myndum af húsakynnum hrossaræktarbúsins.

Fleiri fréttir