Glæsilegur árangur á Andrésarleikum
Um síðustu helgi fóru fram á Akureyri 37. Andésar Andar leikar þar sem börn alls staðar af landinu spreyta sig á skíðum. Þrjátíu og sex krakkar frá Sauðárkróki, Varmahlíð, Blönduósi og Skagaströnd sem æft hafa í Tindastólnum fóru galvaskir og náðu ýmist góðum persónulegum árangri eða sem afrekskeppendur.
María Finnbogadóttir varð í fyrsta sæti 11 ára barna í stórsvigi og hlaut annað sætið í svigi.Birna María Sigurðardóttir krækti sér í 4. sætið í stórsvigi og 3. sætið í svigi.
Að sögn Sigurðar Bjarna Rafnssonar formanns skíðadeildat Tindastóls stóðu allir sig vel og margir sem bættu sinn fyrri árangur. Næsta sunnudag kl. 18:00 verður vetrarstarfi skíðadeildarinnar slitið formlega í Húsi frítímans.