Gleði og gaman á Sönglögum í Sæluviku
Nokkrir viðburðir hafa skapað sér fastan sess í Sæluvikunni undanfarin ár og eru Sönglög á Sæluviku svo sannarlega orðið eitt af þeim. Að venju verða stórtónleikarnir haldnir í Menningarhúsinu Miðgarði, í kvöld 27. apríl, og munu þeir bera yfirskriftina „Kynslóðabilið brúað“. Stefán Gíslason og Einar Þorvaldsson hafa staðið fyrir Sönglögunum síðustu ár og spjallaði blaðamaður Feykis við þá félaga.
„Sæluvikan er náttúrulega svo rótgróin og mikilfengleg listahátíð, hvernig sem á hana er litið, og því ekki ónýtt að fá að vera með,“segir Stefán en þetta munu vera fjórðu tónleikarnir á jafn mörgum árum. „Viðtökurnar hingað til hafa verið frábærar og langt umfram væntingar,“ bætir Stefán við.
Í Sönglögunum hefur tíðkast að taka fyrir ákveðin þemu sem gerir það að verkum að tónleikarnir eru mjög ólíkir frá ári til árs og sífellt ný viðfangsefni. „Það má kannski segja að með Menningarhúsinu hafi skapast sérstök stemning fyrir tónleikum í léttari kantinum, þar sem hljóðkerfi og hljómburður hússins fær að njóta sín til fulls,“ segir Stefán.
„Fram að þessu höfum við tekið fyrir Abba, söngleiki og nú síðast soul-tónlist,“ útskýrir hann, en í ár er óhætt að segja að kynslóðabilið verði brúað, eins og yfirskrift tónleikanna gefur til kynna, því þátttakendur á tónleikunum eru á aldursbilinu 12-70 ára.
„Aðalþema kvöldsins verða lög sem systkinin Ellý og Vilhjálmur sungu og gerðu ódauðleg á sínum tíma, ásamt fjölmörgum öðrum skemmtilegum lögum,“ segir Einar, en á sjötta tug koma að tónleikunum með einhverjum hætti, að meðtöldu tækni- og aðstoðarfólki, og því óhætt að segja að um stórtónleika sé að ræða.
„Kynnir kvöldsins verður sem fyrr Jón Hallur Ingólfsson og fram koma Óskar Pétursson og Álftagerðisbræður, ásamt þeim Herdísi Rútsdóttur og Sigvalda Helga Gunnarssyni. Sérstakur gestur í ár verður stórsöngkonan Guðrún Gunnarsdóttir.
Og ekki má gleyma Línu , Kollu og Írisi Olgu , sem áheyrendur kannast við frá síðustu tónleikum. Rúsínan í pylsuendanum verður svo nýr barna- og unglingakór Varmahlíðarskóla, undir stjórn Helgu Rósar Sigfúsdóttur,“ segir Einar.
Hljómsveitina segja þeir koma úr ýmsum áttum en uppistaðan í henni eru kennarar í Tónlistarskóla Skagafjarðar. „Svo kemur einn úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, Berglind Stefánsdóttir, og annar úr hljómsveitinni Funk that Shit!, Kristján Reynir Kristjánsson, sem gerði það gott í Músíktilraunum á dögunum. Bassaleikarinn er svo fjármálastjóri sveitarfélagsins, Margeir Friðriksson. Eins og þú heyrir þá er þetta bara nokkuð góður kokteill,“ segir Einar glaðbeittur.
Fyrir þá sem vilja tryggja sér miða í tæka tíð fer forsala aðgöngumiða fram í Rafsjá, KS í Varmahlíð og KS á Hofsósi.
/BÞ