Góð stemning á upphafskvöldi Gærunnar
Tónlistarhátíðin Gæran hófst með svokölluðu sólóistakvöldi á Mælifelli í gærkvöldi. Húsið var pakkað, stemningin góð og hvert hæfileikafólkið steig á stokk á fætur öðru.
Það voru þær Sóla og Sunna sem komu fyrstar fram og heilluðu viðstadda með seiðandi söng. Sveinn Rúnar steig næstur á svið og tók allan skalann - allt frá rappi til Elvisar Prestley.
Þorgerður Jóhanna kom beint frá Dalvík og söng hugljúf lög og Fúsi Ben og Vordísin vöktu mikla lukku. Myrra Rós fékk áhorfendur með sér í hópsöng og uppskar mikinn fögnuð.
Gillon, sem jafnan hefur verið kallaður hinn skagfirski Megas, tók lagið og Joe Dubius lék blús með flottu föruneyti. Síðastur á svið var Inc City sem reif upp stemninguna með raftónlist sinni og hitaði mannskapinn upp fyrir það sem koma skal um helgina.
Hátíðin heldur áfram
Í kvöld heldur veislan áfram í húsnæði Loðskinns í Borgarmýri en þá koma fram eftirfarandi hljómsveitir:
Föstudagur 24. ágúst kl. 19:00 - 24:00
Rock to the moon
Brother Grass
Sverrir Bergmann og munaðarleysingjarnir
Eldar
Gildran
Hide your kids
Eivör Pálsdóttir
Sing for me sandra
Dimma
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Hér eru myndir frá sólóistakvöldinu: