Góðar eða slæmar framkvæmdir við Árskóla?

Fundargerð 10. fundar byggingarnefndar Árskóla var lögð fram til afgreiðslu á 613. fundi byggðarráðs Skagafjarðar sem haldinn var í gær. Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra segir að framkvæmdir við Árskóla á Sauðárkróki hafi verið illa undirbúnar en Stefán Vagn Stefánsson oddviti Framsóknarmanna er á öðru máli. Telur hann að sú leið sem samþykkt var að fara sé mun hagfelldari fyrir sveitarfélagið og útsvarsgreiðendur en fyrri hugmyndir gerðu ráð fyrir.

 

Tekist var á um málið og lögðu þeir Sigurjón og Stefán fram sitthvora bókunina.

„Gögn málsins sem nú hafa fengist fram bera með sér að stærstu framkvæmdir Sveitarfélagsins Skagafjarðar á kjörtímabilinu hafa verið illa undirbúnar. Útsvarsgreiðendur í sveitarfélaginu hljóta að vera hugsi yfir meðferð opinberra fjármuna í þessu máli á þeim tímum sem þröngur rekstur sveitarfélagsins hefur kallað á aðhaldsaðgerðir sem bitnað hafa með beinum hætti á íbúum sveitarfélagsins,“ segir í bókun Sigurjóns en Stefán vildi fá eftirfarandi bókað:

„Sú framkvæmd sem hér um ræðir hefur ítrekað verið rædd í byggðarráði og sveitarstjórn og engum gögnum haldið frá sveitarstjórnarfulltrúum. Um fáar framkvæmdir sveitarfélagsins hefur verið eins mikið rætt og viðbyggingu Árskóla og ánægjulegt að sjá þá framkvæmd loks rísa. Sú leið sem samþykkt var að fara er mun hagfelldari fyrir sveitarfélagið og útsvarsgreiðendur en fyrri hugmyndir gerðu ráð fyrir og fellur því vel inn í þær aðhaldsaðgerðir sem sveitarfélagið hefur staðið fyrir.“

Fleiri fréttir