Góðir lestrargestir í Varmahlíðarskóla

Gísli Rúnar og Sara í góðum félagsskap. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI
Gísli Rúnar og Sara í góðum félagsskap. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI
Í Varmahlíðarskóla starfa hin ýmsu teymi og þar á meðal Læsisteymi. Teymið hefur það að leiðarljósi að efla læsi og lestur innan skólans, halda utan um lestrarátök, vera í góðu samstarfi við bókasafnið og vera leiðandi í að halda mikilvægi lestrar og læsis á lofti. Í frétt á vef skólans segir að meðal verkefna sem Læsisteymið er með eru lestrargestir. Það er heldra fólk úr nærsamfélaginu sem hefur áhuga á að koma inn í skólann og hlusta á lestur eða lesa fyrir nemendur.

 

Í vikunni komu Gísli Rúnar Konráðsson, Sara Valdimarsdóttir og Gunnar Rögnvaldsson til okkar sem lestrargestir. Fleiri gestir koma á næstu vikum. Við viljum endilega biðja fólk sem hefur áhuga á að taka þátt í þessu verkefni að hafa samband við skólann. Frábært verkefni sem leiðir kynslóðir saman í lestri.

Í læsisteyminu eru Birgitta Sveinsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Sara Gísladóttir og Sigrún Gylfadóttir.

Nánar má lesa um Lestrarteymið á vef Varmahlíðarskóla og þar má sjá fleiri myndir frá þessu frábæra verkefni >

Fleiri fréttir