Góður árangur hjá UMSS á Landsmóti 50+
Annað Landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri fór fram um helgina í Mosfellsbæ og var þátttakan góð eða um 800 skráningar. Keppendur frá Ungmennasambandi Skagafjarðar náðu góðum árangri og þeirra á meðal var Valgeir Kárason en hann vann til fimm gullverðlauna í sundgreinum.
Sundkapparnir unnu alls til sjö gullverðlauna, þriggja silfurverðlauna og þriggja bronsverðlauna.
- Valgeir Kárason vann fimm gullverðlaun
- Helga Þórðardóttir fékk eitt gull og tvö silfur
- Hans Birgir Friðriksson fékk eitt silfur og tvö brons
- Steinunn Hjartardóttir fékk eitt brons
- UMSS sveitin vann síðan gullverðlaun í boðsundi.
Í frjálsum íþróttum keppti Karl Lúðvíksson og náði í tvö gull og fjögur silfur. 1sæti í langstökki og hástökki, 2. sæti í 100m, stangarstökki, spjótkasti og kringlukasti. Karl endaði síðan í 5. sæti í kúluvarpi.
Tvær sveitir kepptu fyrir UMSS í bridds og stóðu þær sig vel þó þær hafii ekki náð á verðlaunapall.