Góður árangur yngri flokka í körfu
Yngri flokkar körfuboltadeildar Tindastóls náðu góðum árangri í síðustu umferð fjölliðamótanna um helgina. 11. flokkur drengja og 8. flokkur stúlkna unnu B-riðilsmót og 8. flokkur drengja vann tvo og tapaði einum leik í D-riðli.
11. flokkur drengja spiluðu þrjá leiki á Sauðárkróki í stað fjögra en Valsmenn mættu ekki til leiks. Drengirnir töpuðu fyrir Keflavík 44-46, en unnu Hauka 77-65 og Breiðablik 60-45. Þrátt fyrir þetta eina tap unnu þeir mótið og eru Tindastólsmenn alsælir yfir því þar sem þetta í fyrsta skiptið sem þessi aldurshópur sigrar B-riðilsmót.
Í leikjunum þremur skoraði Pétur Rúnar 68 stig samanlagt, Sigurður Páll 38, Agnar og Friðrik Þór 15 hvor, Árni 12, Viðar, Kristinn og Finnbogi 8, Þröstur 4 og Arnar Geir 3.
8. flokkur stúlkna með yfirburðar sigur
8. flokkur stúlkna lauk keppni í B-riðli á Íslandsmótinu með öruggum sigri. Liðið féll niður úr A-riðli í þriðju umferð og samkvæmt heimasíðu Tindastóls voru stelpurnar einbeittar í því að endurheimta sæti sitt aftur meðal þeirra bestu. Tindastóll sigraði Fjölni 55-23 og Ármann með miklum yfirburðum 76-8.
„Hrafnhildur þjálfari var mjög ánægð með stelpurnar og sagði þær hafa spilað eins og alvöru lið í fyrsta sinn í vetur, spilað hörkuvörn sem hafi skilað þeim góðum hraðaupphlaupskörfum,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Stigaskor í leiknum við Fjölni: Valdís 16, Bríet 8, Kolbrún 7, Linda 6, Matthildur 4, Jóna 4, Helga 4, Anna 4 og Sunna 2. Stigaskor í Ármannsleik: Linda 16, Valdís 15, Kolbrún 13, Bríet 9, Matthildur 9, Jóna 4, Anna 4, Júlía 2, Sunna 2 og Helga 2.
8. flokkur drengja lék á Akranesi
8. flokkur drengja lék í D-riðli á Akranesi en strákarnir höfðu unnið E-riðilinn síðast. Þeir unnu Skagamenn með einu stigi 36-35 með æsispennandi lokamínútum þegar Elvar Ingi Hjartarson setti þriggja stiga körfu þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks. Næst unnu strákarnir Fjölni B 37-28, en töpuðu fyrir skemmtilegu liði Njarðvíkur B 39-47. Keflvíkingar létu ekki sjá sig með B-lið sitt og því var mótið klárað á einum degi.
Stigaskor leikmanna var svona: Elvar Ingi 48 auk þess sem hann tók samtals 13 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal 8 boltum, Arnar Ó 16, Halldór Broddi 14 stig og 17 stolnir boltar, Ólafur Már 14 stig og 9 fráköst, Bjarni Páll 8 stig, Haukur Sindri 8 stig og Örvar Pálmi 4. Aðrir leikmenn sem komu við sögu voru Hartmann Felix, Jón Grétar, Alexander Bjarki, Haraldur Viðar, Hákon Hjaltalín og Guðni Bjarni. Flottur og efnilegur hópur fyrir framtíðina.
Eins og fram hefur komið er nokkuð um það að félög sendi ekki lið til keppni í síðustu umferð, nema þegar verið er að keppa að einhverju sérstöku, eins og A-riðli. Þetta segja Tindastólsmenn vera bagalegt fyrir þau lið sem raka þátt af alvöru, leikjum fækkar þar af leiðandi í síðustu umferð og leikmenn fá minna út úr mótinu en æskilegt er. Að vísu ber að geta þess að Þórsarar sendu ekki lið til keppni í 8. flokki stúlkna, vegna slæmrar veðurspár, en hugur mun vera hjá þeim til þess að spila sína leiki engu að síður á næstunni.