Góður sigur á Keflvíkingum

Kvennalið Tindastóls lék heima við Keflavík seinni partinn í gær. Veðrið var ekki til að hrópa húrra fyrir, rok og rigning, en heimastelpurnar voru þó ekki að láta það aftra sér og hófu leikinn af miklum krafti.

Strax á 4. mínútu skoraði Laufey Rún Harðardóttir og á 25. mínútu bætti Hugrún Pálsdóttir við öðru marki Tindastóls með glæsilegum skalla eftir að hafa fengið góða sendingu fyrir markið. Staðan 2-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik náðu gestirnir að laga stöðuna þegar Andrea Ósk Frímannsdóttir skoraði á 49. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og var sigur Tindastóls verðskuldaður.

Eftir að hafa leikið átta leiki er lið Tindastóls í fimmta sæti B-riðils 1. deildar kvenna en átta lið eru í riðlinum. Stelpurnar eru með 9 stig, hafa unnið þrjá leiki en tapað fimm.

Fleiri fréttir