Golfmót á Hlíðarendavelli
Það er nóg um að vera fyrir golfunnendur á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki næstu vikuna en haldin verða tvö innanfélagsmót og eitt opið mót; Ólafshúsmótaröðin og 9 holu Nýliða- og háforgjafarmót annars vegar og Opna KS mótið hins vegar.
Ólafshúsmótaröðin í golfi er hefst á morgun, 6. júní, og verða vinningar veittir fyrir efsta sæti í punktakeppni með og án forgjafar. „Leikið er á miðvikudögum og í verðlaun eru gómsætir vinningar frá Ólafshúsi,“ segir á golf.is. Keppendur þurfa að skrá rástíma á netinu eða í golfskála og ekki skulu fleiri en 3 spilarar vera saman í holli. Mótsstjóri Gunnar Sandholt.
Opna KS mótið
Opna KS mótið verður haldið nk. laugardag, 9. júní, og verða glæsileg verðlaun í boði frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Fyrirkomulagið er Texas Scramble og forgjöf fundin með því að deila með 5 í forgjöf spilafélaga. Gert er ráð fyrir því að ræst sé út af öllum teigum kl. 10 ef þátttaka leyfir.
„Keppendur eru beðnir um að vera mættir eigi síðar en 9:30 en þá verður dregið um hvað lið ræsa út af hvaða teig. Keppendur geta skráð sig saman í ráshópa á netinu eða hringt í skála. Vanti menn spilafélaga verður allt gert til þess að finna fyrir þá félaga,“ segir á golf.is.
Mótsstjórar Gunnar Sandholt og Guðni Kristjánsson. Þátttökugjald kr. 6000.- fyrir parið þ.e. kr. 3000 á þátttakanda.
Nýliða- og háforgjafarmót
Þriðjudaginn 12. júní kl. 17 verður haldið 9 holu Nýliða- og háforgjafarmót. Samkvæmt golf.is er mótið fyrir þá sem eru með 30 eða meira í forgjöf og fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á golfvellinum. Leikin er punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir 1. sætið.