Götumarkaður á Kántrýdögum á Skagaströnd

Götumarkaður verður á Bogabraut á Skagaströnd frá kl. 13-15 nk. laugardag, „en fólki er guðvelkomið að vera lengur. Hvetjum alla til að koma og vera með - saman getum við skapað skemmtilega stemningu,“ segir í fréttatilkynningu frá nefndinni.

Sauðkrækingar og Blönduósingar, og fólkið í sveitinni er einnig hvatt til að vera með söluborð á Bogabrautinni. „Ekki þarf að panta pláss né borga fyrir aðstöðuna, bara koma með dót sem þið viljið selja (og kannski borð og stól), svo er bara að velja sér góðan stað í götunni,“ segir loks í fréttatilkynningu.

Fleiri fréttir