Greifalaust grímuball í kvöld
Samkvæmt nýjustu fregnum af grímudansleik Leikfélags Sauðárkróks hefur verið ákveðið að pússa rykið af plani B þar sem hljómsveitin Greifarnir lögðu ekki veg undir dekk í dag vegna veðurs. Plan B er þannig að sögn Lullu formanns að á Mælifelli verður grímubúninga diskó þar sem 2 þeir Stefán Friðrik Friðriksson og Stefán Arnar Ómarsson verða klárir með smekkfulla vasa af skemmtilegri tónlist til að tjútta við.
Á Fésbókarsíðu LS segir að húsið opni klukkan 23:30 og miðaverð aðeins 500 kr., brjáluð tilboð á barnum til klukkan 01:00 og svo er ósk um að fólk láti sjá sig hresst og kátt í búningi og jafnvel í hlýjum og góðum utanyfirfötum.