Gulnuðu laufin hans Sigvalda
Nýrri skagfirskri tónsmíð var smellt á Spottann í vikunni en það var lagið Gulnuðu laufin sem Sigvaldi Helgi Gunnarsson er skráður fyrir. Lagið er lauflétt og kántrýskotið – en ekki hvað – og haganlega sett saman af þeim Sigvalda og Andra Má Sigurðssyni og prjónað saman í stúdíóinu hjá Reyni Snæ Magnússyni. Feykir rabbaði við Sigvalda.
Sigvaldi segir að þeir félagarnir hafi verið að hittast í skúrnum hjá foreldrum Andra í lok fyrrasumars. „Ég var á leiðinni út í Hraun með pabba ef ég man rétt, var í lopasokkum og það var eitthvað helvíti kuldalegt svona en fallegt og ég var í heimsókn í Firðinum og maður verður einhvernveginn svona meir að komast aftur í heimahagana. Við Andri vorum búnir að hittast í nokkur skipti þarna um sumarið, Ég segi við hann: „Hvað segirðu um að semja lag um haustið? Það er búið að gera svo ótrúlega mörg lög um sumarið, veturinn og auðvitað jólalög. Mér finnst ekkert vera mörg lög um haustið.“ „Já, ókei,“ segir Andri. „Segðu mér eitthvað meira, ertu ekki að fara út í sveit og eitthvað?“ Ég svaraði því að jú, ég væri að fara út í sveit. „Já heyrðu ókei, ókei, ókei hérna,“ og svo fóru hjólin náttúrulega að snúast í hausnum á honum og við erum að gutla þarna eitthvað, svona back and forth eins og maður segir, ég kem með einhvrejar línur og hann einhverjar og svo tókum við þetta upp bara á símana.“
Sigvaldi segist svo hafa farið að hlusta á upptökurnar eitthvað seinna og þá var bara allt í einu komið lag. Hann segir þá hafa verið búna að missa af haustglugganum svo það var ákveðið að bíða með útgáfu á laginu í ár en Andri var á leiðinni til Mexíkó þar sem hann býr. Næsta skref hjá Sigvalda var að tala við Reyni Snæ þegar það var komin heildarmynd á lagið og Reyni leist vel á. „Það tók ekki langan tíma að taka upp lagið, ég man ekki hvort við hittumst í tvö eða þrjú skipti.“ Sigvali hafði áður tekið lagið upp í heimastúdíóinu en þeir ákváðu að taka allt lagið upp að nýju í betri græjum hjá Reyni. „Til að flýta fyrir þá spilaði Reynir þetta næstum allt inn aftur að frátöldum einhverjum gíturum og svo söng ég náttúrulega yfir þetta allt.“
Geggjað að fá að vinna með svona flottu fólki
Hann nefnir að lagið sé undir áhrifum frá 70's þjóðlagarokki og íslenskri dægurtónlist. Gestur Sveinsson hljóðmaður sá um að mixa og mastera og svo sá Birgir Clausson um að hanna íkon/cover. „Hann er líka tengdur Skagafirði, tengdasonur Gunnars Gests og Guðnýjar Guðmunds í Eyrartúninu. Ég sagði við hann að mig vantaði svona haustcover, ég hefði verið búinn að gera ýmislegt sem var ekki alveg nógu gott. Ég sendi honum mynd frá Kálfshamarsvíku á Skaga sem er notuð í bakgrunni og ég er bara rosalega ánægður með hvernig til tókst, bæði albúmið, lagið sjálft og upptökuna. Við vildum að þetta væri kántrý og svolítið upbeat en samt ekki alveg trúbbastemningin. Þannig að ég er bara virkilega stoltur og ánæður. – geggjað að fá að vinna með svona flottu fólki.“
Sigvaldi er með annað lag tilbúið og setur það væntanlega í hlustun þegar komin eru viðbrögð á Gulnuðu laufin og fleiri lög eru í vinnslu.
Í kvöld er Sigvaldi síðan að spila fyrir Bræður og Guðrúnu Gunnars í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. „Ég er í dálítið öðru hlutverki þar, ég verð bara gítarleikari og deili því með honum Gunnari Inga sem er frábær gítarleikari hérna frá ... ja, hann er nú að sunnan held ég en býr á Blönduósi, er einmitt kórstjóri Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og er líka að kenna í tónlistarskólanum. Svo er bróðir minn, Jakob, en hann spilar á bassa, svo er náttúrulega Eysteinn þarna [hljómborð] og svo auðvitað Kristján sem er geggjaður trommari. Eysteinn er frábær í sínu eins og allir vita en hann er einnig hljómsveitarstjóri. Þeir keyra þetta svo áfram Bræðurnin Gunnarssynir og þetta verður bara skemmtun fyrir alla,“ segir Sigvaldi og bætir við að Guðrún Gunnars sé frábær söngkona og mikil fagkona. „Ég hvet alla sem hafa gaman að dægurtónlist til að kíkja í Miðgarð.“
Var að koma af tónleikum með Kacey Musgraves
Eitthvað fleira að frétta af þér? „Ég var að gifta mig í sumar, henni Bergrúnu Sólu, ég var svona aðallega að hugsa um það, og svo er ég alltaf eitthvað að trúbba og með brúðkaupsgigg. Svo er ég með hljómsveit sem heitir Mannamót sem hefur verið að spila á alls konar skemmtunum eitthvað. Svo hef ég verið svolítið fyrir austan að spila með kunningjum mínum þar í nokkur skipti, það er alltaf skemmtilegt.“ Hann segist líka reyna að gefa sér meiri tíma til að semja lög og hann sé kominn með ansi góðan banka af lögum sem hann langar til að leyfa fólki að heyra. Eitt lag er tilbúið eins og áður sagði og hin í startholunum fyrir upptökur.
„Svo styttist í tónleikana Jólin heima. Ég ætla bara að fá að vera gítarleikari þar og syngja eitt eða tvö lög, ég sé ekki um hljómsveitarstjórn í ár, ég ákvað að taka mér pásu fra því. En svona dagsdaglega þá vinn ég í Tækniskólanum, á sérnámsbraut þar og ég er í því giggi sko þar sem ég er að kenna unglingum með sérþarfir eða svoleiðis. Það er svona það sem ég er að gera líka... já og svo var ég að koma frá Nashville og Tennessee þar sem við vorum til að sjá tónleika með Kacey Musgraves og við fórum inn á nokkra Honky Tonk staði og heimsóttum sýsluna þar sem Dolly Parton ólst upp. Þannig að það var alveg hrikalega flott ferð en þetta var í fyrsta sinn sem ég hef komið til Bandaríkjanna - hafði áður komið til Mexíkó,“ sagði Sigvaldi áður en Feykir steig á bremsuna.
Feykir þakkar Sigvalda fyrir lengra spjall en til stóð og nú er bara að skella sér á skemmtilegt kvöld með Bræðrum og Guðrúnu Gunnars í kvöld, Jólin heima þann 12. desember og hlusta endalaust á lagið hans Sigvalda, Gulnuðu laufin.
