Há sjávarstaða gæti valdið vandræðum

Í morgun brást Vegagerðin við óvenjulegu vandamáli við hringtorgið við norðurmörk Sauðárkróks þegar sjór fór að flæða þar inn. Stórstreymt er núna og sjávarstaða há og því fór sjór að flæða að torginu er þungar öldurnar skullu á grjótgarðinum og skvettist yfir hann. Var fengin grafa til að moka rás sem leiða á sjóinn sem eftir kemur til síns heima þ.e. aftur út í Atlantshafið.  

Landhelgisgæsla Íslands vekur á heimasíðu sinni athygli á að samfara slæmri veðurspá og um 972 mb loftþrýstingi verður óvenju mikil sjávarhæð næstu daga. Eru umráðamenn skipa, báta og hafna beðnir um að hafa varann á.  Á þetta sérstaklega við um hafnir SV-lands.

Búast má við því að versni veðrið að einhverju marki verði Strandvegurinn ófær vegna sjógangs og flóðs en háflóð er í kringum miðnætti og hádegi.

Fleiri fréttir