Hættuástandi aflýst á Sauðárkróki

Búið er að aflétta snjóflóðahættuástandi á Sauðárkróki og geta íbúar sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gær snúið þangað aftur. Þetta var ákveðið eftir að snjóflóðafræðingur hafði rannsakað vettvang eftir hádegi í dag og taldi ekki lengur þörf á rýmingu húsanna.

Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki segir að þrátt fyrir að þessu hættuástandi sé aflétt þá sé ekki hættulaust að vera á eða við snjóhengjur og ítrekar varnaðarorð sem hann lét hafa eftir sér í dag að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að vera ekki að leika sér þar sem hætta getur skapast ef hengjur falla.

Fleiri fréttir