Hafnfirðingar hnupluðu öllum stigunum

Vængstífðir Tindastólsmönnum urðu að þola tap á Sauðárkróksvelli í dag þegar Haukar úr Hafnarfirði komu, sáu og sigruðu. Þeir gerðu eina mark leiksins rétt fyrir leikhlé en það verður varla sagt að sigur þeirra hafi verið sanngjarn.

Eins og kunnugt er náðu úrvalsdeildarliðin Breiðablik og ÍA í tvo hættulegustu menn Tindastóls í vikunni, þá Ben J. Everson og Theo Furness, og þrátt fyrir að lið Tindastóls spilaði á köflum góðan fótbolta og hefði í fullu tré við gestina þá vantaði augljóslega bitið í sóknarleikinn. Leikið var við frábærar aðstæður, stillt veður og hita. Stólarnir byrjuðu leikinn betur og strax eftir hálfa mínútu komst Max Touloute inn fyrir bakvörð Hauka og negldi í stöng úr þröngu færi. Nokkru síðar vildu Tindastólsmenn fá dæmda hendi og víti en dómarinn var ekki á sama máli. Þegar leið á fyrri hálfleik náðu Haukarnir betri tökum á leiknum og fengu fjöldann allan af hornspyrnum. Stólarnir urðu fyrir skakkaföllum því Árni Arnarson lá óvígur eftir að hann og Sigurbjörn Hreiðarson skullu með höfuðin saman. Árni kom þó aftur inn á eftir yfirferð og skoðun utan vallar en þá meiddist Loftur Páll Eiríksson og hann þurfti líka aðhlynningu. Það var svo skömmu fyrir hlé sem Magnús Páll Gunnarsson skoraði laglegt mark fyrir gestina, fékk frábæra sendingu inn á vítateiginn og skallaði í bláhornið. Tindastólsmenn voru slegnir út af laginu og voru fegnir að komast inn í klefa.

Tindastóll var mun betri aðilinn í síðari hálfleik og jókst sóknarþungi liðsins eftir því sem leið á hálfleikinn. Haukarnir reyndu að gera út um leikinn með því að beita skyndisóknum en voru klaufar að spila sig rangstæða hvað eftir annað. Haukar fengu í raun engin færi í síðari hálfleik en voru þéttir til baka og gerðu Tindastólsmönnum erfitt fyrir. Stólarnir fengu engu að síður nokkur ágæt færi en Daði Lárusson var betri en enginn í markinu og varði nokkrum sinnum mjög vel í hálfleiknum. Blönduósingurinn Benjamín Gunnlaugsson kom inn í lið Tindastóls í hálfleik og sýndi nokkrum sinnum glæsilega takta og þá var Max að gera fína hluti á köflum en ekki tókst að koma boltanum í markið. Þrátt fyrir mikla pressu náðu Stólarnir ekki að skora og tap á heimavelli, 0-1, staðreynd.

Það er sem fyrr segir mikil blóðtaka fyrir Stólana að missa Ben og Theo og heyrst hefur að verið sé að leita að leikmönnum til að ganga til liðs við Stólana. Augljóslega er þörf á markaskorara en Fannar Freyr Gíslason var frammi í dag og komst ekki í takt við leikinn en hann hefur glímt við meiðsli. Þá eiga Árni Einar og Arnar Sig nokkuð í land með að komast í leikform en Árni hefur misst úr nokkra leiki og Arnar ekkert verið með. Þá var Fannar Kolbeins í banni í dag eftir að hafa fengið rautt fyrir að fá boltann í andlitið í síðasta leik!

 

En það er engin ástæða til að örvænta, liðið spilaði lengstum flottan fótbolta, unga vörnin stígur ekki mörg feilspor og lið Hauka er vel skipað. Að viku liðinni spila Stólarnir á Ólafsvík við topplið Víkings. Áfram Tindastóll.

Fleiri fréttir