Halldór og Dagný sigruðu á Skagfirðingamótinu 2012 - aganefnd mótsins með eina kæru til meðferðar
Árlegt golfmót burtfluttra Skagfirðinga á suðvesturhorninu, Skagfirðingamótið, fór fram á Hamarsvelli í Borgarnesi á laugardag, fimmta árið í röð þar. Alls mættu á níunda tug kylfinga til leiks við kuldalegar og vindasamar aðstæður, sem settu sitt mark á skorið. Var gamla góða Skarðagolan mætt suður í öllu sínu veldi!
Halldór Halldórsson héraðsdómari sigraði í karlaflokki með 32 punkta og í kvennaflokki sigraði Dagný Guðmundsdóttir, tengdadóttir Gunnu Jósafats í Borgarnesi, systur Imbu Jós, með 31 punkt. Halldór átti einnig besta skorið á mótinu, 83 högg, og fékk ein verðlaun til viðbótar ásamt eiginkonu sinni, Ragnheiði Matthíasdóttur, sem punktahæsta par mótsins annað árið í röð. Alls voru 28 pör/hjón skráð til leiks. Dagný er framkvæmdastjóri Cintamani, eiginkona Jóns Jósafats Björnssonar og tilheyrir því Fata-hreyfingunni svonefndu sem á ættir sínar að rekja í Gröf á Höfðaströnd.
Verðlaun á mótinu hafa sjaldan verið glæsilegri. Landsbankinn á Sauðárkróki gaf nýja farandbikara í karla- og kvennaflokki og verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 10 sætin í hvorum flokki, auk nándarverðlauna á par 3 brautum og lengdarverðlauna á 18. holu, svo ekki sé nú minnst á úrdráttarverðlaun. Kylfingar frá Króknum hafa verið duglegir að aka suður til móts við gamla sveitunga en mótið hefur verið haldið frá árinu 1998 og er eitt hið stærsta sinnar tegundar hér á landi.
Mótið fór vel fram í alla staði, þó að vindurinn hafi mátt vera hægari. Aganefnd Skagfirðingamóts er þó með eina kæru til meðferðar vegna meintrar ólöglegrar nándarmælingar á 2. holu og á viðkomandi keppandi yfir höfði sér refsingu á næsta móti, allt að 10 punkta í mínus. Af tillitssemi við viðkomandi kylfing verður nafn hans ekki gefið upp opinberlega en hann reyndi í málsvörn sinni að flagga sveinsprófi í húsasmíðum og löggildingu í lengdarmælingum, sem aganefnd hefur nú þegar ákveðið að taka ekki til greina, í samráði við GSÍ og vallarstjóra á Hamarsvelli.
Styrktaraðilar voru alls 38 fyrirtæki og einstaklingar, og kunna aðstandendur mótsins þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn. Stærstu styrktaraðilar voru Flugfélag Íslands, Landsbankinn á Sauðárkróki, Hótel Hamar, Sæblik, Icelandair, Dale Carnegie á Íslandi, Ölgerðin, Nói-Síríus, Íslandsbanki, Gæðingur Öl, Límtré Vírnet, Cintamani, Íslenska auglýsingastofan og Sjöfn Sigfúsdóttir.
Aðrir gefendur verðlauna voru Kaupfélag Skagfirðinga, Mjólkursamlag KS, Sauðárkróksbakarí, Hlíðarkaup, Steinullarverksmiðjan, Byko, Morgunblaðið, Stöðin Borgarnesi, Vodafone, Smith og Norland, Flugger-litir, Fjarðarbakarí, Reynir bakari, Passion bakarí, Íslenska umboðssalan, Fiskkaup, Nafir fasteignafélag, HH-trésmiðir, Arctic Trucks, Brimborg, Bókaútgáfan Hólar, Golfbúðin Hafnarfirði, Bakkus og Málaramiðjan.
/BJB
.