Handverk og ýmislegt notað og nýtt
Helgarmarkaður verður haldinn í Kringlumýri, í Blönduhlíð Skagafirði, um helgina, dagana 9. - 10. júní en markaðurinn hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður.
„Handverk og ýmislegt notað og nýtt. Þæft, heklað, prjónað og saumað,“ segir í auglýsingu sem birt var í nýjasta eintaki Sjónhornsins.
Þar verður m.a. antík frá Selfossi, prjónauppskriftir, geisladiskur hljómsveitarinnar Multi Musica og nýja bókin hans Jóa í Stapa, Ný Axarsköft. Svo verða börnin með tombólu.
Opið verður frá kl. 13 - 17 báða dagana.
„Heitt á könnunni. Hlökkum til að sjá ykkur,“ segir loks í auglýsingu.