Harmar framgöngu þingmanna og ráðherra
Stjórn Svæðisfélags VG í Skagafirði harmar framgöngu þingmanna og ráðherra Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, samkvæmt yfirlýsingu sem hún sendi frá sér, en flestir greiddu atkvæði með svokölluðum IPA styrkjum, þrátt fyrir samþykktir flokksins um að ekki verði tekið við styrkjum til aðlögunar að EB.
„Sýnir þetta betur en flest annað á hvaða vegferð forysta flokksins er, sem leynt og ljóst berst fyrir áframhaldandi samningum við Evrópusambandið, þrátt fyrir margítrekaðar yfirlýsingar um að hagsmunum okkar sé betur borgið utan ESB,“ segir í yfirlýsingu.