Háskólinn á Hólum á Vísindavöku
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
26.09.2013
kl. 09.13
Háskólinn á Hólum tekur þátt í Vísindavöku 2013. Viðfangsefnið að þessu sinni verður kynning á rannsóknum, sem lögð er stund á við fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans, á ferskvatnslífríki og fjölbreytileika þess. Vísindavakan verður í Háskólabíó, föstudaginn 27. september kl. 17:00 - 22:00.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.visindavaka.is.