feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla
21.08.2026
kl. 08.44
Við stöndum frammi fyrir mikilvægri þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst. Niðurstaðan gæti varðað miklu um framtíð mína og minna og byggðarlagsins míns. Ég er bóndi og við fjölskyldan rekum býli á Brúnastöðum í Fljótum. Þar stundum við ýmiskonar starfsemi, erum með stórt sauðfjárbú á íslenskan mælikvarða, framleiðum nautakjöt og mjólkum geitur til að gera geitaosta. Við rekum einnig ferðaþjónustu og leggjum áherslu á að öll þessi verkefni styðji hvert annað. Við bjóðum gestum og gangandi að koma og kynna sér það sem við erum að gera og kaupa afurðirnar okkar.
Meira